Fagmennska og vönduð vinnubrögð
ADH-Raf er á meðal 2,6% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla stöng skilyrði Viðskiptablaðrins og Keldunnar og er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2025. Viðurkenningin er gefin út árlega til heiðurs fyrirtækjum með sterkan rekstur.
Samtals fengu aðeins 1727 fyrirtæki viðurkenninguna árið 2025.
Við eigendur og starfsfólk ADH-Raf erum virkilega stolt af því að taka við þessari eftirsóttu viðurkenningu, sem staðfestingu á góðum rekstri og frábæru starfi.
Sjá nánar á keldan.is
ADH-Raf er framsækið fyrirtæki sem veitir aðhliða þjónustu í raflögnum á almennum markaði og í iðnaðarrafmagni.
Hjá ADH Raf starfa rafvirkjar og verktakar með áratuga reynslu og sérfræðiþekkingu í rafmagni.
ADH Raf leggur áherslu á vönduð vinnubrögð og fagmennsku. Fyrirtækið starfar eftir gæðavottunarkerfi Samtaka iðnaðarins og Mannvirkjastofnunar.
Arnar Dór Hannesson stofnaði fyrirtækið ADH-Raf í byrjun ársins 2018. Arnar útskrifaðist með sveinspróf úr FB árið 2004 og sem meistari árið 2011.
Hann vann hjá Raf-X um árabil, svo hjá Rafholt, þar til hann var ráðinn sem framkvæmdastjóri rafiðnaðarsviðs hjá VHE. Eftir 10 ár hjá VHE ákvað Arnar að stofna sitt eigið fyrirtæki, ADH-Raf ehf.
Fyrstu þrjú árin voru starfsmenn fyrirtækisins þrír, en í byrjun ársins 2022 var hópurinn búinn að stækka upp í níu manns.
Hópurinn er leiddur áfram af þaulvönum rafvirkjum með áratuga reynslu, en nokkrir starfsmenn eru enn í námi, ýmist fyrir sveinspróf eða meistarapróf.
Til gamans má geta að ADH er skammstöfun fyrir nafnið Arnar Dór Hannesson.





Verkstæði ADH-Raf er á Einhellu 5 í Hafnarfirði. Við sinnum verkefnum aðallega á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum,
en oft líka í kring um Selfoss og Hveragerði og víðar um landið.
Hafðu samband og við gerum tilboð í verkið þitt!
Arnar Dór, framkvæmdastjóri, s. 6234723, arnar@adhraf.is
Samúel Grímsson, bókari, reikningar@adhraf.is